Stórsýning Um 100 aðilar sýna vörur, þjónustu og annað á sýningunni Verki og viti 2008 sem verður opnuð í Laugardalshöll í dag.
Stórsýning Um 100 aðilar sýna vörur, þjónustu og annað á sýningunni Verki og viti 2008 sem verður opnuð í Laugardalshöll í dag. — Morgunblaðið/Frikki
VERK og vit 2008, sem er stórsýning á því sem varðar byggingarstarfsemi, skipulagsmál, mannvirkjagerð, menntun á því sviði og margt fleira, verður opnuð formlega kl. 16 í dag í Laugardalshöllinni. Sýningin Verk og vit er nú haldin í annað sinn.

VERK og vit 2008, sem er stórsýning á því sem varðar byggingarstarfsemi, skipulagsmál, mannvirkjagerð, menntun á því sviði og margt fleira, verður opnuð formlega kl. 16 í dag í Laugardalshöllinni.

Sýningin Verk og vit er nú haldin í annað sinn. Margit Elva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar, sagði í gær að mikið líf og fjör hefði verið í Laugardalshöll frá því á sunnudaginn var við undirbúning. „Það er mikið lagt í þessa sýningu. Hún verður stórglæsileg,“ sagði Margit. Sýnendur eru um eitt hundrað talsins að þessu sinni og þótt sýningin sé haldin í sama húsnæði og 2006 taldi Margit að sýningin í ár væri heldur umfangsmeiri og mikið lagt í sýningarbása.

Menntun verður talsvert áberandi á sýningunni og munu Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöltækniskóli Íslands, sem sameinast 1. júlí næstkomandi, vera með áberandi kynningu. M.a. verður tilkynnt nýtt nafn hins sameinaða skóla í dag. Einnig verða bæði Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík með kynningar á menntunarframboði sínu svo nokkuð sé nefnt.

Þá er mikið sýnt af vélum, tækjum og búnaði til byggingarstarfsemi, byggingarefni kynnt og margháttuð þjónusta á sviði mannvirkjagerðar. Einnig er kynnt heilsuvernd, hugbúnaður og margt fleira. Margit sagði að sýningin yrði mjög fjölbreytt og spannaði vítt svið.

„Í heildina er það frábært sem verið er að kynna og spennandi fyrir fagaðila og almenning,“ sagði Margit. Þótt heldur hafi dregið fyrir sólu í efnahagslífinu sagði Margit að bjart væri yfir sýningaraðilum.

„Flestir voru auðvitað löngu búnir að ákveða að vera með í þessari sýningu og héldu sínu striki. Auðvitað hefur maður heyrt að fólk ætli ekki að vera eins stórtækt og áður, en ég get ekki séð það hér. Það er allt á fullu. Ég heyri líka að það er mikil eftirvænting hjá fólki að koma og skoða sýninguna. Þegar fer að harðna í ári er þetta einmitt rétti staðurinn fyrir fólk að kynna hvað það hefur fram að færa. Þá er rétt að nýta svona sýningu til að koma sér á framfæri,“ sagði Margit.

Sýningin Verk og vit 2008 verður opin fagaðilum kl. 17-20 í kvöld og 11-19 á morgun. Opið verður fyrir almenning næstkomandi laugardag kl. 12-18 og á sunnudag kl. 12-17. Miði fyrir almenning kostar 1.200 kr. en frítt er fyrir börn undir 12 ára í fylgd með fullorðnum. Aðgangseyrir námsmanna, eftirlaunaþega og öryrkja er 900 krónur.