Blóðberg er ekki bara falleg jurt heldur er það jafnframt til margra hluta nytsamlegt. Blóðbergsbreiðurnar verða oft áberandi í júní og júlí og jafnvel fram í ágúst.
Blóðberg er ekki bara falleg jurt heldur er það jafnframt til margra hluta nytsamlegt. Blóðbergsbreiðurnar verða oft áberandi í júní og júlí og jafnvel fram í ágúst. Fátt er betur við hæfi en að blanda sér gott blóðbergste eftir gönguferðir í náttúrunni, og svo þykir mörgum gott að blanda blóðbergi út í salat og nota sem krydd á grillkjöt.