ÞORSTEINN Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. ágúst 2008 vegna veikinda.
ÞORSTEINN Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. ágúst 2008 vegna veikinda. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri lagaskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið sett ráðuneytisstjóri meðan á leyfi hans stendur. Þá hefur Þórunni J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu, verið falið að vera staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma.