Jackie Chan og Chris Tucker ná greinilega vel saman á hvíta tjaldinu því þeir félagar hafa nú ákveðið að taka enn einu sinni höndum saman í kvikmynd, svo lengi sem það er ekki Rush Hour 4.
Jackie Chan og Chris Tucker ná greinilega vel saman á hvíta tjaldinu því þeir félagar hafa nú ákveðið að taka enn einu sinni höndum saman í kvikmynd, svo lengi sem það er ekki Rush Hour 4. „Við settumst niður og ákváðum að við vildum gera aðra kvikmynd. Ekki Rush Hour-mynd, eitthvað nýtt,“ sagði Jackie Chan við MTV News á dögunum. Hin aldna hasarhetja sagði að ekkert væri ákveðið í þessum málum annað en það að stjörnurnar tvær eru ákveðnar í því að gera aðra mynd saman.