Stutt Eldsneyti Eldsneytisverð hefur hækkað hér á landi síðustu daga. Lítrinn af bensíni hefur hækkað um tvær krónur hjá flestum olíufélögum og er algengt verð 149,60 krónur.

Stutt Eldsneyti Eldsneytisverð hefur hækkað hér á landi síðustu daga. Lítrinn af bensíni hefur hækkað um tvær krónur hjá flestum olíufélögum og er algengt verð 149,60 krónur. Verð á dísilolíu hefur hækkað um eina krónu og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu 159,50 krónur.

Sinubruni Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um sinubruna í Grafarvogi í gær. Einn bíll var sendur á vettvang, og hafði töluverður reykur myndast vegna brunans.