Oliver litli
Oliver litli
DANSKA þjóðin er slegin óhug eftir að þrír menn ruddust að móður og fimm ára gömlum syni hennar þar sem þau voru fyrir framan leikskóla í Virum, norður af Kaupmannahöfn, í gær.
DANSKA þjóðin er slegin óhug eftir að þrír menn ruddust að móður og fimm ára gömlum syni hennar þar sem þau voru fyrir framan leikskóla í Virum, norður af Kaupmannahöfn, í gær. Móðir drengsins, sem heitir Oliver, var skelfingu lostin og lá blóðug eftir með áverka í andliti. Lögreglan lýsti eftir svörtum skutbíl og náðist hluti númersins. Mannanna var enn leitað í gærkvöldi. | 14