Villingur Michelle Rodriguez í kvikmyndinni S.W.A.T.
Villingur Michelle Rodriguez í kvikmyndinni S.W.A.T.
BANDARÍSKA leikkonan Michelle Rodriguez segist vera búin að ná áttum í lífinu og komin á réttan kjöl. Hún var dæmd til fangelsisvistar í desember í fyrra fyrir að brjóta skilorð og sat inni í 17 daga í janúar sl.

BANDARÍSKA leikkonan Michelle Rodriguez segist vera búin að ná áttum í lífinu og komin á réttan kjöl. Hún var dæmd til fangelsisvistar í desember í fyrra fyrir að brjóta skilorð og sat inni í 17 daga í janúar sl. Skilorðsbundinn dóm fékk hún fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Rodriguez birtist á næsta ári í fjórðu Fast and the Furious -myndinni sem hefur ekki enn hlotið nafn. Rodriguez þurfti að ljúka þegnskylduvinnu auk fangelsisdóms og bloggar um það að nú sé hún að greiða skuldir sínar við samfélagið samhliða því að leika í kappaksturs- og hasarmyndinni með Vin Diesel og Paul Walker. Leikkonan ætlar að halda til Ítalíu í júní og skrifa þar kvikmyndahandrit.