Íslandsmót iðngreina verður haldið í anddyri gömlu Laugardalshallarinnar dagana 18.-19. apríl. Búast má við að þar verði mikið líf í tuskunum því þar keppa hátt í 80 iðnnemar í 11 greinum.

Íslandsmót iðngreina verður haldið í anddyri gömlu Laugardalshallarinnar dagana 18.-19. apríl. Búast má við að þar verði mikið líf í tuskunum því þar keppa hátt í 80 iðnnemar í 11 greinum. Markmiðið er að vekja athygli á fjölbreyttri iðn- og starfsmenntun og þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Ég var svo heppin að taka þátt í slíkri keppni fyrir ári en það var í fyrsta skipti sem keppt var í ljósmyndun. Við vorum pöruð saman, einn ljósmyndanemi ásamt einum nema í grafískri miðlun og saman bjuggum við til auglýsingaplakat. Þetta var ný reynsla og það skiptir mestu máli, sama hvernig fer. Ég vissi reyndar ekkert við hverju var að búast í keppninni en hugmyndavinnan hjálpaði mikið til við að koma mér í gang. Svo var bara að taka ákvörðun um hvernig ætti að framkvæma hlutina, öruggt en vel, rétt eins og í fréttaljósmyndun. Miklu máli skiptir að vera vel hvíldur og vel upplagður, passa upp á að stressa sig ekki. Bros kemur manni langt áleiðis þegar verið er að taka myndir af fólki. Þá líður manni vel og allt gengur miklu betur.

Spennandi verkefni

Þátttaka í keppninni skipti mig miklu máli. Það var áhugavert að fá að vinna með skemmtilegu fólki og prófa eitthvað nýtt. Aðeins að brjóta upp skóladaginn. Ég var ánægð með að ná því takmarki sem ég hafði sett mér og vinna keppnina. Maður fær smá aukaorku og trú á sjálfum sér til að halda áfram að gera vel. Ekki spillti fyrir að geta bætt því inn í ferilskrána þegar ég sótti um vinnu sem ljósmyndari hjá Morgunblaðinu og komst á námssamning. Þegar ég byrjaði að vinna þar kom mér raunar mest á óvart hvað ég átti rosalega mikið eftir ólært, sem er frábært í sjálfu sér. Starfið er mjög fjölbreytt og það er yndislegt að fá að takast á við ný og spennandi verkefni á hverjum degi. Ég trúi því að maður læri mest af því að prófa sig áfram og gefast aldrei upp. Ég vissi raunar ekki alveg við hverju ég gat búist þegar ég byrjaði en Morgunblaðið er frábær vinnustaður fullur af mjög skemmtilegu og góðu fólki sem er tilbúið að hjálpa og gefa mér góð ráð og það er ómetanlegt.

Ég vona að þeir sem taka þátt í Íslandsmóti iðngreina í ár hafi fyrst og fremst gaman af. Aðalatriðið er að hafa trú á sjálfum sér og því sem maður tekur sér fyrir hendur og gefast ekki upp.

Höfundur er ljósmyndanemi

á Morgunblaðinu