Kaffisopinn góði Þetta fólk er augljóslega sólgið í kaffi.
Kaffisopinn góði Þetta fólk er augljóslega sólgið í kaffi. — Reuters
Ekki eru það allsendis ný tíðindi að kaffidrykkja sé talin draga úr líkum á elliglöpum en nú gæti verið að niðurstöður bandarískrar rannsóknar geti skýrt hvernig á því stendur.

Ekki eru það allsendis ný tíðindi að kaffidrykkja sé talin draga úr líkum á elliglöpum en nú gæti verið að niðurstöður bandarískrar rannsóknar geti skýrt hvernig á því stendur. Frá þessu er greint á vefmiðli BBC en fyrrnefnd rannsókn var gerð á kanínum í háskólanum í Norður-Dakóta. Svo virðist sem kaffi (eða koffínið sem finnst jú í kaffidrykknum) komi að einhverju leyti í veg fyrir þær skemmdir sem kólesteról getur unnið á líkamanum, en kólesteról er einmitt talið vera eitt af því sem veikir varnir heilans og miðtaugakerfisins. Sumir segja að þetta séu „bestu sannanir hingað til“ fyrir jákvæðum áhrifum kaffidrykkju.

Í rannsókninni var koffínskammti sem samsvarar því magni sem er í einum kaffibolla bætt í fituríkt fóður hjá ákveðnum hópi af kanínum á degi hverjum, en koffíninu var sleppt í samanburðarhópnum. Í ljós kom eftir 12 vikur að varnarkerfi miðtaugakerfisins hjá þeim kanínum sem fengu koffín hafði orðið fyrir miklu minni skemmdum vegna fituríku fæðunnar.