[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
William Shatner var gestur Jay Leno á þriðjudagskvöld. Shatner fer á kostum sem eilífðartöffarinn og öfugugginn Denny Crane í þáttunum Boston Legal, en hjá Leno sagði hann að Crane væri alger andstæða sín. Þeir eru eins og svart og hvítt.

William Shatner var gestur Jay Leno á þriðjudagskvöld. Shatner fer á kostum sem eilífðartöffarinn og öfugugginn Denny Crane í þáttunum Boston Legal, en hjá Leno sagði hann að Crane væri alger andstæða sín. Þeir eru eins og svart og hvítt. Það olli mér vonbrigðum.

Þegar ég sá William Shatner í stólnum hjá Leno bjóst ég við að hann myndi hneyksla spjallþáttastjórnandann á allan mögulegan hátt. Ég bjóst við að hann myndi tala opinskátt um kynlíf sitt þrátt fyrir að vera kominn á áttræðisaldur og það hefði ekki komið mér á óvart þótt rekkjunautar hans væru þrisvar til fjórum sinnum yngri en hann.

Svo var ekki. Því miður fór stærsti hluti viðtalsins í spjall um helsta áhugamál Shatners; reiðmennsku. William Shatner er ástríðufullur áhugamaður um hesta, en þó Denny Crane gefi sig út fyrir að vera mikilfenglegur knapi þá kemur hann ekki nálægt hestum.

Loks var barnalegt af mér að telja að Shatner ætti konu í hverri höfn. Því þegar hann var búinn að ræða við Leno um bíla, hesta og nýútkomna geisladiskinn þar sem hann les guðsorðið tilkynnti hann að eiginkonan biði baksviðs. Þvílík vonbrigði.