Með í maganum Nicole Kidman.
Með í maganum Nicole Kidman. — Reuters
LEIKKONAN Nicole Kidman, sem á von á barni með eiginmanni sínum Keith Urban, hefur þjáðst af töluvert mikilli morgunógleði á meðgöngunni.

LEIKKONAN Nicole Kidman, sem á von á barni með eiginmanni sínum Keith Urban, hefur þjáðst af töluvert mikilli morgunógleði á meðgöngunni. „Þetta hefur verið ansi rosalegt en þar fyrir utan hef ég það mjög gott,“ segir leikkonan sem er þó að búa sig undir erfiðasta hlutann, þ.e. síðustu mánuði meðgöngunnar.

Kidman á fyrir tvö ættleidd börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Tom Cruise.