Glæstar vonir „Ég lagði mig alla í þessa plötu og ég vona bara að fólki líki hún,“ segir Jóhanna Guðrún , Yohanna , um nýja plötu sína, Butterflies and Elvis, sem kemur í verslanir í dag.

Glæstar vonir

„Ég lagði mig alla í þessa plötu og ég vona bara að fólki líki hún,“ segir Jóhanna Guðrún , Yohanna , um nýja plötu sína, Butterflies and Elvis, sem kemur í verslanir í dag. „Þetta er popptónlist en það eru áhrif frá hinum og þessum tónlistarmönnum sem ég hef hlustað á í gegnum tíðina.“ Á plötunni nýtur hún aðstoðar lagahöfundarins og upptökustjórans Lees Horrocks sem hefur meðal annars unnið með Celine Dion og Enrique Iglesias . „Hann er algjör snillingur þessi maður, það er ekki spurning.“