Senn fyllast götur á ný af börnum á reiðhjólum, hlaupahjólum, línuskautum, hjólabrettum og öðrum farartækjum.

Senn fyllast götur á ný af börnum á reiðhjólum, hlaupahjólum, línuskautum, hjólabrettum og öðrum farartækjum. Þó að þau bjóði upp á góða hreyfingu og útiveru er skynsamlegt að huga að örygginu áður en lagt er í hann, til dæmis með því að setja upp hlífðarhjálm og hlífar. Slíkur búnaður getur dregið úr áverkum og jafnvel komið í veg fyrir slys.

Á þessum árstíma er víða mikið af smásteinum á gangstéttum og göngustígum eftir veturinn. Þeir sem eru á hlaupahjólum, hjólaskóm og línuskautum þurfa sérstaklega að gæta sín á þeim enda auka þeir líkurnar á að þeir detti og meiði sig.