EMILIO Diaz, faðir bandarísku leikkonunnar Cameron Diaz, lést á þriðjudaginn, aðeins 58 ára að aldri. Banamein hans var lungnabólga. Skyndilegt fráfall Diaz mun vera fjölskyldu hans gríðarlegt áfall enda mun hann hafa verið við hestaheilsu og í góðu formi fram til þessa.
Cameron fékk fréttirnar þar sem hún var við tökur á kvikmyndinni My Sister's Keeper , en tökum á myndinni hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma.
Þau feðgin munu hafa verið mjög náin og sem dæmi má nefna að Emilio kom fram í smáhlutverki í kvikmyndinni There's Something About Mary árið 1998.