[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
I nnkaupastjóri Real Madrid, gamla kempan Predrag Mijatovic , segir það ómögulegt að lokka Cristiano Ronaldo til liðsins. Mijatovic hafði vonast til að Ronaldo yrði andlit liðsins, líkt og Zidane hafi verið á sínum tíma.

I nnkaupastjóri Real Madrid, gamla kempan Predrag Mijatovic , segir það ómögulegt að lokka Cristiano Ronaldo til liðsins. Mijatovic hafði vonast til að Ronaldo yrði andlit liðsins, líkt og Zidane hafi verið á sínum tíma. „Það virðist ekki vera raunhæft að fá hann, því miður.“

S pænski landsliðsmaðurinn David Villa , sem skorar mörkin fyrir Valencia á Spáni, segist helst vilja fara til Arsenal fari hann á annað borð til Englands. „Þeir spila frábæran einnar snertingar fótbolta með hröðum skyndisóknum, maður hlýtur að hrífast af slíku.“

Miðvallarleikmaður Hamborgar, Hollendingurinn Rafael Van der Vaart , vonast til að fara frá liðinu í sumar, en Chelsea er talið vilja fá leikmanninn í sínar raðir. „Ég vildi helst fá þessi mál á hreint sem fyrst. Ég er metnaðarfullur og vil fá tækifæri til að vinna titla.“