ÍSLENSKI fjallahjólaklúbburinn býður öllum sem áhuga hafa á frítt hjólaviðgerðanámskeið í klúbbhúsinu að Brekkustíg 2 í dag, fimmtudag kl. 20-22.

ÍSLENSKI fjallahjólaklúbburinn býður öllum sem áhuga hafa á frítt hjólaviðgerðanámskeið í klúbbhúsinu að Brekkustíg 2 í dag, fimmtudag kl. 20-22.

Kennt verður hvernig stilla á gíra bæði að framan og aftan, hvernig á að herða út í legur í sveifarhúsi og nöfum, hvernig á að mæla slit á keðju og almenn yfirferð á drifbúnaði og stillingu bremsa.

Fyrirfram skráning fer fram hjá Fjölni í síma 840-3399 eða í netfangið fjolnirb@actavis.is.