Brot 432 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var eftir Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á átta klukkustundum fóru 7.

Brot 432 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var eftir Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á átta klukkustundum fóru 7.553 ökutæki þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 76 km á klukkustund en þarna er 60 km hámarkshraði. Áttatíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108. mbl.is