Í DESEMBER 2007 sóttu 17.446 börn leikskóla á Íslandi og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 230 frá desember 2006 eða um 1,3%. Hlutfall barna sem sækja leikskóla er um 95% í þriggja ára og fjögurra ára...

Í DESEMBER 2007 sóttu 17.446 börn leikskóla á Íslandi og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 230 frá desember 2006 eða um 1,3%.

Hlutfall barna sem sækja leikskóla er um 95% í þriggja ára og fjögurra ára aldurshópunum. Í desember 2007 sóttu 90,9% tveggja ára barna leikskóla og 30,8% eins árs barna.

Í desember 2007 nutu 1.184 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, sem eru 6,8% allra leikskólabarna. Börnum sem njóta stuðnings fjölgar um 200 frá árinu 2006, eða um 20,3%.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að þegar skoðaðar séu tölur aftur til ársins 1998 megi sjá að viðvera barna í leikskólum sé stöðugt að lengjast. Hlutfall þeirra barna sem skráð eru í a.m.k. 8 tíma viðveru á dag fer sífellt hækkandi.

Árið 1998 voru rúmlega 40% (40,3%) barna í leikskólum skráð í a.m.k. 8 tíma viðveru. Fjórum árum síðar er þetta hlutfall komið í 61,7% og árið 2007 eru 77,8% allra barna í leikskólum skráð í a.m.k. 8 tíma daglega viðveru.

Hærra hlutfall drengja en stúlkna er skráð í lengri viðveru. Í desember 2007 eru 78,3% allra drengja í leikskólum í a.m.k. 8 tíma vistun á meðan samsvarandi hlutfall stúlkna er 77,1%. Fyrir þremur árum voru 70,1% allra drengja í þetta langri vistun á meðan hlutfall stúlkna var 68,4%.

Það skal þó tekið fram að þetta er sú vistun sem foreldrar hafa tryggt sér en ekki er óalgengt að foreldrar sæki börn sín áður en dvalartími þeirra er útrunninn, samkvæmt vef Hagstofu Íslands.

Börnum með annað móðurmál en íslensku fjölgar enn

Börnum sem hafa annað móðurmál en íslensku fjölgar áfram og eru nú 1.571 talsins, eða 9,0% allra leikskólabarna. Algengasta erlenda móðurmál leikskólabarna er pólska (324 börn) og í öðru sæti er enska (164 börn).

Í desember 2007 eru 367 leikskólabörn skráð með erlent ríkisfang. Flestir erlendir ríkisborgar eru frá Austur-Evrópu eða 59,1% erlendra leikskólabarna. Börn með asískt ríkisfang eru 10,6% erlendra leikskólabarna.