P. Diddy Fékk sér fimm ný föt.
P. Diddy Fékk sér fimm ný föt. — Reuters
RAPPARINN P. Diddy ætlar að eyða um 230 milljónum íslenskra króna í veisluhöld í tilefni af því að hann hefur nú fengið stjörnu merkta sér á götu í Hollywood.

RAPPARINN P. Diddy ætlar að eyða um 230 milljónum íslenskra króna í veisluhöld í tilefni af því að hann hefur nú fengið stjörnu merkta sér á götu í Hollywood. Veislan verður haldin annað kvöld og meðal gesta verða Tom Cruise og koma hans Katie Holmes, Pharrell Williams, Eva Longoria og Beckham-hjónin.

„Það er hægt að eignast margt í lífinu, en að sjá þessa stjörnu á götunni, það er eitthvað sem ég lét mig ekki einu sinni dreyma um,“ sagði Diddy.

Leikarinn Jamie Foxx mun halda ræðu til heiðurs gestgjafanum og ekkert verður til sparað í mat og drykk. Búið er að kaupa vodka fyrir rúmar tvær milljónir og kampavínið verður sent með einkaþotu á staðinn. Sjálfur hefur Diddy fengið sér fimm alklæðnaði fyrir kvöldið.