ÚTIVISTARTÍMI barna og unglinga tekur breytingum í dag. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti eftir til kl. 22 og 13 til 16 ára unglingar mega ekki vera úti eftir kl. 24 nema í fylgd með fullorðnum.

ÚTIVISTARTÍMI barna og unglinga tekur breytingum í dag. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti eftir til kl. 22 og 13 til 16 ára unglingar mega ekki vera úti eftir kl. 24 nema í fylgd með fullorðnum. Undantekning er gerð eða unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

Útivistarreglunar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn, en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en ætla má að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi um 10 tíma svefn á sólarhring.