ICELANDAIR Group hefur stofnað nýja ferðaskrifstofu fyrir íslenska markaðinn og ráðið Hörð Gunnarsson, fv. framkvæmdastjóra Ferðaskrifstofu Íslands, sem framkvæmdastjóra.
ICELANDAIR Group hefur stofnað nýja ferðaskrifstofu fyrir íslenska markaðinn og ráðið Hörð Gunnarsson, fv. framkvæmdastjóra Ferðaskrifstofu Íslands, sem framkvæmdastjóra. Áhersla verður lögð á sumar- og vetrarleyfisferðir Íslendinga og móttöku erlendra ferðamanna. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, segir félagið sjá mikil tækifæri á þessum markaði.