Íbúar á grísku eyjunni Lesbos hafa höfðað mál gegn samtökum samkynhneigðra í Grikklandi, í því skyni að tryggja einkarétt eyjarskeggja á að geta kallað sig lesbíur.

Íbúar á grísku eyjunni Lesbos hafa höfðað mál gegn samtökum samkynhneigðra í Grikklandi, í því skyni að tryggja einkarétt eyjarskeggja á að geta kallað sig lesbíur. Talsmaður eyjarskeggja segir íbúa enn þjást af þeirri „sálfræðilegu og siðferðislegu nauðgun“ að samkynhneigðir hafi eignað sér nafn eyjunnar.

Uppruna hugtaksins „lesbía“ má rekja til þess að gríska skáldkonan Saffó orti konum ástarljóð á eyjunni Lesbos. aí