Avery Johnson
Avery Johnson
„ÞAÐ var ekki auðveld ákvörðun enda er Avery Johnson frábær þjálfari,“ sagði Mark Cuban, hinn litríki eigandi NBA-liðsins Dallas Mavericks, í gær þegar hann tilkynnti um brottrekstur þjálfara liðsins.

„ÞAÐ var ekki auðveld ákvörðun enda er Avery Johnson frábær þjálfari,“ sagði Mark Cuban, hinn litríki eigandi NBA-liðsins Dallas Mavericks, í gær þegar hann tilkynnti um brottrekstur þjálfara liðsins. Dallas lék til úrslita um titilinn árið 2006 undir stjórn Johnson en á sl. tveimur tímabilinu hefur liðið fallið úr keppni í 1. umferð úrslitakeppninnar. Johnson var þjálfari ársins 2006 í NBA-deildinni en hann er 43 ára gamall og eflaust verður hann ekki lengi atvinnulaus. Dallas vann 194 leiki og tapaði 70 undir stjórn Johnsons sem varð meistari með San Antonio Spurs á sínum tíma sem leikmaður.