Kate Hudson
Kate Hudson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKKONAN Kate Hudson er á forsíðu nýjasta heftis People sem birtir lista yfir 100 fegurstu manneskjur heims, eins og það hefur oft gert áður. Hudson var valin úr hópi hinna hundrað fögru og frægu.

LEIKKONAN Kate Hudson er á forsíðu nýjasta heftis People sem birtir lista yfir 100 fegurstu manneskjur heims, eins og það hefur oft gert áður. Hudson var valin úr hópi hinna hundrað fögru og frægu.

Meðal þeirra sem komust á lista eru leikkonan Halle Berry, á lista í 12. sinn, og táningsstjarnan Miley Cyrus.

Hudson tekur við kyndlinum af annarri leikkonu, Drew Barrymore. Hudson hefur náttúrulegan þokka að mati ritstjórans og fegurð sem þykir í tísku þessa dagana sem ku felast í því að láta lýtalækna ekki krukka í sig.

Hudson þykir að auki fyrirmyndarmóðir og eiga í góðu sambandi við barnsföður sinn, þó svo hún sé með öðrum þessa dagana, leikaranum Owen Wilson.

Hudson á þokkann ekki langt að sækja, í móður sína Goldie Hawn sem þótti með allra huggulegustu leikkonum á 8. áratugnum.

Aðrir á lista eru m.a. Nicole Kidman, Jennifer Lopez, George Clooney, Brad Pitt, Angelina Jolie, Matthew McConaughey, Johnny Depp, Jessica Simpson, Alicia Keys og Beyonce.