Stutt Afskráð Samþykkt var á stjórnarfundi FL Group í gær að taka félagið af markaði. 87% eigenda hlutafjár hafa samþykkt að vera áfram í félaginu. Á hluthafafundi 9. maí verða eigendum 13% eignarhlutar boðin hlutabréf í Glitni í skiptum fyrir hluti í FL Group vilji þeir ekki vera í félaginu.
Játuðu
Ljóst er að mikið tjón varð í tveimur sinubrunum við Hvaleyrarvatn í vikunni. Sex piltar, 17-20 ára, voru handteknir. Að sögn lögreglu liggur aðild 5 þeirra fyrir og hafa þeir játað sök en alls voru 10 piltar yfirheyrðir vegna brunanna.