LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í gærmorgun ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Var ökumaðurinn ásamt farþega færður á lögreglustöð. Engum sögum fer af viðbrögðum ekilsins en farþeginn tók afskipti lögreglunnar afar óstinnt upp.
LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í gærmorgun ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Var ökumaðurinn ásamt farþega færður á lögreglustöð.
Engum sögum fer af viðbrögðum ekilsins en farþeginn tók afskipti lögreglunnar afar óstinnt upp. Hótaði hann lögreglumanninum að ganga ærlega í skrokk á honum þegar sá síðarnefndi væri ekki á vakt. Hótunin verður kærð.