Aðdáendur Hairspray hafa nú ástæðu til að fagna, því að fólkið á bak við myndina er byrjað að vinna að gerð framhaldsmyndar. Leikstjórinn, framleiðandinn og tónlistarhöfundar hafa allir samþykkt að taka þátt en ekkert hefur verið staðfest um leikaraval. Myndin á að sögn að vera beint framhald af þeirri fyrri og vonast er til að John Travolta, Zac Efron, Christopher Walken, Michelle Pfeiffer, Queen Latifah, Nicky Blonsky og Brittany Snow snúi aftur í aðalhlutverkin.
Áætluð frumsýning er árið 2010 en það ættu að berast fréttir af leikaramálum fljótlega. iav