Einar Bárðarson
Einar Bárðarson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
EINAR Bárðarson hefur látið af störfum sem umboðsmaður Garðars Thórs Cortes eftir rúmlega þriggja ára samstarf.

EINAR Bárðarson hefur látið af störfum sem umboðsmaður Garðars Thórs Cortes eftir rúmlega þriggja ára samstarf. Ástæðurnar segir Einar vera margar en það hafi vegið þungt að eiginkona hans, Áslaug Thelma Einarsdóttir, á von á öðru barni þeirra hjóna innan fárra vikna.

„Við verðlaunaafhendingu bresku tónlistarverðlaunanna fannst mér sem vissum áfanga hefði verið náð og ég ákvað í kjölfarið að ljúka við útgáfu seinni plötunnar og draga mig svo í hlé,“ sagði Einar í viðtali við Morgunblaðið í gær. Þá var hann á ferð til móts við nýsjálensku óperusöngkonuna Kiri te Kanawa sem er við laxveiðar í Rangá. Einar hefur þó ekki alfarið sagt skilið við Garðar Thór því hann mun enn sinna stjórnarstörfum fyrir Believer Music Group sem gefið hefur út báðar plötur Garðars Thórs Cortes. | 32

hoskuldur@mbl.is