Guðmundur Ingi Þorvaldsson og félagar hans í Atómstöðinni buðu mótmælandanum fræga Helga Hóseassyni að mæta á útgáfutónleika sína á Organ í kvöld.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson
og félagar hans í Atómstöðinni buðu mótmælandanum fræga
Helga Hóseassyni
að mæta á útgáfutónleika sína á Organ í kvöld. En þrátt fyrir að sá gamli prýði glæsilegt umslag nýrrar breiðskífu þeirra sá hann sér ekki fært að leggja ferðalagið á sig. Því fer sveitin til hans í kvöld og mótmælir með honum á horni Langholtsvegar og Holtavegar í beinni útsendingu í Kastljósi. bös