BMW e30 Blæjubíllinn er með M5-mótor.
BMW e30 Blæjubíllinn er með M5-mótor.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það eru ekki allir bílaáhugamenn sem láta húðflúra á sig akstursbrautir og merki bílaframleiðenda. Lilja Þorsteinsdóttir spjallaði við Sveinbjörn Hrafnsson sem ferðast reglulega til Þýskalands til að keyra bílana sína á Nürburgring.

Flestir eiga sér einhver áhugamál og stunda þau af mismiklum krafti. Til eru svo aðrir sem taka áhugamálin sín mjög alvarlega og njóta þess sannarlega að kafa dýpra í þau en Pétur og Páll. Sveinbjörn Hrafnsson, sérlegur bílaáhugamaður, tilheyrir án efa síðarnefnda hópnum og hefur haft mikinn áhuga á bílum frá unga aldri.

„Krókurinn beygðist mjög snemma. Þegar ég var tveggja eða þriggja ára gutti þekkti ég næstum alla bíla en það þótti óvenjulegt því svoleiðis kunnátta þekktist varla í ættinni og þekkist ekki enn.

Sveinbjörn hefur alltaf látið sig dreyma um ákveðna bíla og er svo lánsamur að hafa sankað að sér flestöllum draumabílunum í gegnum tíðina. „Ég á hvítan BMW e30-blæjubíl frá 1990, sem upprunalega var 325. Hann var keyptur 2004 og var nú ekki besta eintakið. Það fór hellings peningur í að gera hann almennilega ökuhæfan, svo leiddi eitt af öðru og ég ákvað að taka hann allan í gegn. Þegar það var búið bauðst mér undirvagn af M3-bíl og ég skellti mér á hann. Þá var öllu breytt aftur í bílnum og ég setti meðal annars 3.8L ///M5-mótor ofan í.“

„Það var ótrúlegt glópalán að ég skyldi svo eignast gulan ALPINA BITURBO '92 módel nr. 346 af 507. Hann hefur verið draumabíllinn minn síðan um 1990 er ég las fyrst um bílinn í erlendu tímariti,“ segir Sveinbjörn. „Ég sá umræðu um hann á BMWkraftur.is, hringdi í eigandann úti og bað svo félaga minn að ná í hann. Hann var í töluvert betra ástandi en ég átti von á, alveg ótrúlega góður. Ég veit ekki betur en hann sé einn af örfáum Alpina biturbo í heiminum sem er keyrður undir 85.000 kílómetrum. Einnig er hann örugglega sé eini sem er Ferrari-gulur. Ég þurfti að dytta að hinu og þessu þar sem bíllinn hafði verið óskráður í sjö ár en það var allt og sumt.“

Þó að Lotus Omega sé ekki lengur á dagskránni hjá Sveinbirni er hann einnig búinn að sanka að sér BMW M5 og Mercedes Benz 500 E sem reyndar er seldur. Blaðamaður getur ekki stillt sig um að spyrja Sveinbjörn hvað sé svona heillandi við BMW. „Góð spurning, þetta eru bara einhver trúarbrögð. Hönnunin og útlitið heillaði mig á sínum tíma og bílarnir sem ég á eru einmitt frá þeim tíma. Það er virkilega gott og gaman að keyra þá því þeir eru yfirleitt þeir öflugustu í sínum flokki. BMW-bílarnir hafa ákveðinn persónuleika sem ég heillaðist af.“

Gaman að keyra hratt

En hvernig skyldi standa á því að Sveinbjörn og frú flytji bílana sína úr landi og þeysist um á „autobahn“ í Þýskalandi með íslensku einkanúmerin „ALPINA“ og „CABRIO“? „Þjóðverjarnir eru heillaðir af einkanúmerunum, slíkt er ekki í boði í Þýskalandi og því fá bílarnir gríðarlega athygli. Þessir bílar og minn akstursstíll henta ekki íslenskum hraðalögum enda leigjum við félagi minn Þórður bílageymslu við Nürburgring. Ég og konan ætlum út í ágúst og verðum rúma viku við Nürburgring Nordschleife. Ég er heppinn því konan mín elskar þetta. Hún hefur alla tíð haft áhuga á bílum og þó hún sé ekki jafn sjúk og ég þykir henni umhverfið í kringum þetta mjög heillandi. Fólk þarf ekkert að keyra á slaufunni til að heillast af staðnum. Það er slíkur urmull af ofurgræjum þarna og oft er ekkert mál að sníkja rúnt með hinum og þessum ökumönnum.“

Sveinbjörn segist keyra á Nürburgring sér til gamans. „Ég er ekki í kappakstri þarna á Nürburgring, þetta er opinber þjóðvegur sem er opinn næstum alla daga frá kl. 17-19.30 og oft um helgar frá morgni til kvölds. Þetta er nefnt Tourist-fahren í daglegu tali og hefur verið við lýði síðan brautin var opnuð árið 1927. Allir sem eru með skráðan bíl geta keyrt en kappakstur sem og vítaverður akstur er stranglega bannaður á Tourist-fahren. Þeir sem keyra þannig fá sekt og frávísun. Nürburgring Gmbh gerir brautina út en þar fer fram keppni, æfingar, þolakstur, kennsla og svo eru bílaframleiðendur með prófanir þarna líka en Formúlu 1-keppnir fara reyndar eingöngu fram á GP-brautinni. Einn stærsti viðburður ársins er samt sem áður algjörlega óviðkomandi bílum en það er Rock am Ring. Það er líklega stærsta innkoma ársins á Nürburgring ásamt 24 hours Nürburgring-keppninni.

Eftir að brautin kom í Top Gear-þættinum sprakk allt á svæðinu, það er allt að gerast þarna núna og mikil aðsókn hjá fjárfestum að kaupa lóðir og slíkt í kringum brautina,“ segir Sveinbjörn.

Formúla 1 á Íslandi?

Það er af illri nauðsyn sem Sveinbjörn flytur bílana úr landi en hann lifir í voninni um að Íslendingar notfæri sér fyrr en síðar aðstæður hér á landi og byggi almennilega akstursbraut. „Ég er einn af þeim sem eru mjög hrifnir af því að keyra greitt en íslenskt vegakerfi býður auðvitað ekki upp á það þó að bílar séu orðnir mjög fullkomnir. Þessa dagana er reyndar verið að gera hörkugóða hluti á rally cross-brautinni og vonandi að það farnist vel. Hugmyndin að Iceland Motopark var góð hugmynd sem fór illa. Þetta voru gríðarlegir draumórar og pælingin ljósárum á undan veruleikanum, eins konar Einar Ben-útfærsla.“

„Mótorsport snýst auðvitað ekki bara um Formúlu 1 en að mínu mati eru hér einstakar aðstæður því hér er hægt að vera í köldu loftslagi en með háan brautarhita. Það er jú fræðilega hægt að setja heitt vatn í brautina. Ef við berum saman Ísland og Spán, þar sem mikið er keyrt á veturna, þá fer minni tími fyrir Formúlu 1-lið að fljúga hingað.

Verði brautin byggð á suðvesturhorninu er mun styttra að keyra þangað frá Keflavíkurflugvelli en frá flugvellinum á Spáni. Nóg er til af heitu vatni og byggingarefni á Reykjanesinu en þetta eru jú hugmyndir sem hafa verið viðraðar og heyrst áður. Með því að fá hingað kappaksturs- og keppnislið, auk annarra alvöru fyrirtækja er tilheyra kappakstri, til þróunar og æfinga kæmu auðvitað gríðarlegir peningar inn í landið og hugmyndin því alveg meistaraleg,“ segir Sveinbjörn að lokum. liljath@mbl.is

„Fólki þykir þetta dálítið steikt“

Spurður um húðflúrin segir Sveinbjörn: „Hesturinn kemur frá Ferrari sökum Formúlu 1 sem ég lifði og hrærðist í á sínum tíma. Þegar ég var með félaga mínum á F1-keppni niðri á Monza á Ítalíu árið 2000 fékk ég mikil viðbrögð við hestinum, Ítalirnir hreinlega biluðust þegar þeir sáu hann.“ M-merkið fékk ég mér eftir að ég átti /// M-mótor og Mercedes-merkið þegar ég átti 500 E-bílinn. Stóra Alpina-merkið fékk ég mér auðvitað út af gula bílnum.

„Fólki þykir þetta dálítið steikt en það er svo sem alveg sama hvað ég hef tekið mér fyrir hendur í gegnum tíðina, það er yfirleitt frekar öfgakennt í allar áttir. Þau verða örugglega fleiri húðflúrin, bílatengd.“

Í hnotskurn
» Nürburgring er akstursbraut í Nürburg, Þýskalandi.
» Brautin var byggð á þriðja áratug 20. aldar.
» Slaufan (Nordschleife) er víða talin vera erfiðasta og mest krefjandi tilbúna braut í heimi.
» Það stendur til að byggja hraðskreiðasta rússíbana heims hjá Nürburgring árið 2009.