BANDARÍSKA leikkonan Sarah Jessica Parker hefur tekið að sér starf kynnis í nýrri, bandarískri raunveruleikaþáttaröð sem gengur út á að finna besta bandaríska myndlistarmanninn. Þættirnir munu koma til með að heita American Artist, þ.e.
BANDARÍSKA leikkonan Sarah Jessica Parker hefur tekið að sér starf kynnis í nýrri, bandarískri raunveruleikaþáttaröð sem gengur út á að finna besta bandaríska myndlistarmanninn. Þættirnir munu koma til með að heita American Artist, þ.e. Bandarískur myndlistarmaður. Hugmyndin að baki þáttaröðinni, líkt og með fjölda annarra sem kenna sig við raunveruleika, er að smala saman 12 ungum myndlistarmönnum og láta þá glíma við ólíka stíla, stefnur og miðla myndlistar. Þeir munu falla úr keppni einn af öðrum, skv. ákvörðun dómnefndar sem skipuð verður „sérfræðingum“, að því er fram kemur í frétt dagblaðsins
Guardian
. Að lokum stendur einn uppi sem „bandaríski listamaðurinn“. Þættirnir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni Bravo en fyrirtæki Parker, Pretty Matches, framleiðir þá.