Bandaríski bílaframleiðandinn Chrysler hefur sagt upp 3.700 starfsmönnum. Uppsagnirnar koma til með að taka gildi í september og eru ekki aðeins bundnar við starfsfólk í Bandaríkjunum. Chrysler sagði einnig upp um 4.000 manns á síðasta ári.

Í fréttum frá Bandaríkjunum kemur fram að gera megi ráð fyrir frekari uppsögnum frá öðrum bandarískum bílaframleiðendum en Ford hefur einnig tilkynnt uppsagnir. srb