UNDANFARNA mánuði hefur öryggissvið Neytendastofu fengið faggiltar skoðunarstofur til að kanna raflagnir og rafbúnað á rúmlega þrjátíu tjaldsvæðum um allt land þar sem mögulegt er að tengja hjólhýsi og húsbíla við rafmagn.
Niðurstöður könnunarinnar eru þær að í 78% tilvika voru athugasemdir gerðar við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum. Í 52% tilfella voru gerðar athugasemdir um almennt ástand rafmagnstaflna. Í 48% tilfella voru gerðar athugasemdir við frágang tauga í rafmagnstöflum. Þá voru gerðar athugasemdir við lekastraumsrofvörn í 48% tilfella. Athugasemdir við tengla voru gerðar í 41% tilfella, en oftast er um að ræða að notuð er röng gerð tengla. Einungis fjögur tjaldsvæði uppfylltu allar öryggiskröfur.
Athygli skal vakin á að Neytendastofa lét gera sambærilega könnun fyrir þremur árum. Þrettán tjaldsvæði sem þá fengu athugasemd vegna öryggishættu hafa ekki bætt ráð sitt og hafa öll aftur fengið athugasemdir.
Neytendastofa áréttar að eigendur og umráðamenn tjaldstæða bera ábyrgð á ástandi raflagna og rafbúnaðar sem þar er notaður.
Neytendastofa hvetur til þess að bragarbót verði gerð nú þegar þar sem raflagnir og rafbúnaður er ekki samkvæmt reglum og stuðla þannig að bættu öryggi. jonhelgi@mbl.is