Milljónabætur Konu sem var við störf á Heilbrigðisstofnun Selfoss hafa verið dæmdar í héraðsdómi tæpar fjórar milljónir í bætur auk vaxtagreiðslna frá 2003. Hún féll á ísilagðri skábraut á svölum er hún var að ýta sjúklingi í hjólastól.

Milljónabætur Konu sem var við störf á Heilbrigðisstofnun Selfoss hafa verið dæmdar í héraðsdómi tæpar fjórar milljónir í bætur auk vaxtagreiðslna frá 2003. Hún féll á ísilagðri skábraut á svölum er hún var að ýta sjúklingi í hjólastól. Konan kenndi til í hné og ökkla og er varanleg örorka hennar metin 12 prósent. Vinnuaðstaðan þótti ófullnægjandi í mati Vinnueftirlits ríkisins þar sem yfirborð skábrautarinnar hafi ekki verið nægilega stamt til að draga úr hálkumyndun.

Norðurflug Norðurflug hefur nú heimild til farþega- og vöruflugs sem gildir frá og með liðnum mánuði. Norðurflug hefur fram til þessa verið með leyfi til verkflugs og rekur þrjár þyrlur af gerðinni Eurocopter AS-350, SA-365N og Bell 206.