Frískleg Minnie Driver er ánægð með að bera barn undir belti.
Frískleg Minnie Driver er ánægð með að bera barn undir belti. — Reuters
LEIKKONAN geðþekka Minne Driver er komin átta mánuði á leið og harðneitar með öllu að gefa upp hver er faðir barnsins. Hún hlakkar til að ala barnið upp ein og segir það veita sér styrk að tala opinberlega um þá ákvörðun sína.

Samkvæmt fréttaveitunni Bang Showbiz segir Driver það frábært að vera sjálfstæð. „Í dag þarf maður engan mann. Í gamla daga var þeim konum útskúfað sem eignuðust barn utan hjónabands. Í dag talar maður um það í spjallþáttum.“

Driver, sem er 38 ára gömul, segir að ef faðir barnsins vilji tala opinberlega, þá geti hann gert það, en það verði þá hans ákvörðun. Faðirinn mun ekki verða viðstaddur fæðinguna.

„Ég er ekki gift og ég veit ekki hvort ég muni áfram vera með gaurnum. En þar sem hann vill ekki tala um að hann sé faðirinn er það okkar einkamál,“ segir Driver.