HARÐUR árekstur varð um kl. 14:30 á Breiðholtsbraut, við Seljaskóga, í gær. Tveir fólksbílar lentu saman og var fólk úr báðum bifreiðum flutt á sjúkrahús. Einn er talinn alvarlega slasaður en ekki er vitað um meiðsl hinna þriggja.

Þá var ökumaður, sem valt bifreið sinni á Hafnavegi á Reykjanesi síðdegis í gær, fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ekki er talið að maðurinn sé alvarlega slasaður.