Hallur Magnússon | 24. júlí Grænar greiðslur í landbúnaði! Við eigum að gera allan íslenskan landbúnað vistvænan þannig að merking íslenskra landbúnaðavara með íslenska fánanum sé trygging fyrir neytendur allra landa að um vistvæna ræktun sé að ræða.

Hallur Magnússon | 24. júlí

Grænar greiðslur í landbúnaði!

Við eigum að gera allan íslenskan landbúnað vistvænan þannig að merking íslenskra landbúnaðavara með íslenska fánanum sé trygging fyrir neytendur allra landa að um vistvæna ræktun sé að ræða.

Þá eigum við að sjálfsögðu að breyta eins miklu af íslenskum landbúnaði yfir í lífræna ræktun og við mögulega getum.

Stuðning ríkisvaldsins við landbúnað á að binda við vistvæna ræktun og sérstakt átak á að gera til þess að aðstoða bændur við að skipta yfir í lífræna ræktun.

Þetta sagði ég fyrir tuttugu árum – og segi það enn!

hallurmagg.blog.is