Becromal á Íslandi hefur gert samning við verktakafyrirtækið Húsbygg um að ljúka uppbyggingu á aflþynnuverksmiðju fyrirtækisins á Krossanesi við Akureyri.

Becromal á Íslandi hefur gert samning við verktakafyrirtækið Húsbygg um að ljúka uppbyggingu á aflþynnuverksmiðju fyrirtækisins á Krossanesi við Akureyri.

Framkvæmdir hafa legið niðri um hríð vegna ósamkomulags við fyrri verktaka og valdið þriggja vikna töf á verkinu. Fulltrúar Becromal og Húsbygg gera sér vonir um að hægt verði að vinna þessa töf upp og að verksmiðjan muni hefja starfsemi sína um áramót eins og gert hefur verið ráð fyrir. ejg