Þriðjudaginn 29. júlí verður farin óhefðbundin leið í leiðsögn um Viðey. Verkefnastjóri Viðeyjar, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, og Hjálmar Hjálmarsson munu leiða gönguna og segja frá nýjum uppgötvunum í sögu Viðeyjar.

Gangan verður í anda Lygasögugöngunnar sem boðið var upp á á Viðeyjarhátíð og vakti gríðarlega kátínu. Siglt er frá Skarfabakka kl. 19:15. Gangan tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.