Þjóðhátíð í Eyjum hefur verið ein vinsælasta hátíðin um verslunarmannahelgina undanfarin ár og oft hefur verið erfitt að fá far stuttu fyrir þjóðhátíð. Það sama virðist vera uppi á teningnum í ár og þótt enn séu lausar flugferðir og í Herjólf er nauðsynlegt að hafa hraðar hendur eigi að tryggja sér miða í tæka tíð. Sérstaklega á það við um miða heim á mánudeginum því einungis Flugfélag Íslands á lausar ferðir á mánudeginum. Þá er hins vegar uppselt frá Eyjum hjá bæði Flugfélagi Vestmannaeyja og Herjólfi.
Að sama skapi eru ekki mikið af lausu fari til Eyja á föstudeginum og á það við Flugfélag Íslands og Flugfélag Vestmannaeyja. Það er uppselt til Eyja með Herjólfi á föstudeginum. Áhugasamir geta þó enn keypt miða til Eyja á fimmtudegi, föstudegi, laugardegi og sunnudegi en betra er að tryggja sér miða sem fyrst áður en fleiri ferðir seljast upp.
slg