Teknir Ronnie Wood, annar frá vinstri, ásamt félögunum í Rolling Stones.
Teknir Ronnie Wood, annar frá vinstri, ásamt félögunum í Rolling Stones. — Reuters
THE Rolling Stones eiga sér milljónir aðdáenda um heim allan og eflaust fylgist stór hluti þeirra með þeim fréttum sem berast af einkalífi ryþmagítarleikarans Ronnie Wood.

THE Rolling Stones eiga sér milljónir aðdáenda um heim allan og eflaust fylgist stór hluti þeirra með þeim fréttum sem berast af einkalífi ryþmagítarleikarans Ronnie Wood.

Wood, sem er orðinn 61 árs, hefur átt í ástarsambandi við tvítuga rússneska fyrirsætu og hefur það ógnað hjónabandi hans, sem hefur fram að því þótt talsvert farsælt.

Samkvæmt fréttaveitunni Bang Showbiz er Wood nú kominn í meðferð vegna áfengis-, eiturlyfja- og kynlífsfíknar. Í meðferðinni mun hann hafa sagt öðrum sjúklingum að hann elskaði báðar þessar konur, eiginkonuna og fyrirsætuna. Meðferðin tekur sex vikur og er gítarleikaranum bannað að hafa nokkurt samband við fólk fyrir utan stofnunina. Heimildamaður þar innan dyra segir rokkarann líta vel út og vera kátan. „Hann er í opnum meðferðartímum og greindi þar frá því að hann ætti eiginkonu og vinkonu og að hann elskaði þær báðar. Það hljómar undarlega en þannig lítur hann á það.“