Nýtt lag „Já, takk fyrir það,“ segir Karl Sigurðsson Baggalútur, eftir hamingjuóskir með 35 ára afmælið í gær. Baggalútsbræður hafa gefið út nýtt lag, Þjóðhátíð ´93, sem fjallar um Þjóðhátíð í Eyjum.

Nýtt lag

„Já, takk fyrir það,“ segir Karl Sigurðsson Baggalútur, eftir hamingjuóskir með 35 ára afmælið í gær. Baggalútsbræður hafa gefið út nýtt lag, Þjóðhátíð ´93, sem fjallar um Þjóðhátíð í Eyjum. „Jú, textinn er byggður á sannsögulegum atburðum höfundar, en nöfnum hefur verið breytt, af virðingu við þá sem málinu tengjast,“ segir Karl, en textinn inniheldur skemmtilegt endarím að vanda. Heyra má lagið á baggalutur.is/party.