Lísa í Undralandi Mia Wasikowska.
Lísa í Undralandi Mia Wasikowska.
TIM Burton hefur loksins fundið sína Lísu, en leit að aðalleikkonu í kvikmynd hans um Lísu í Undralandi hefur nú staðið yfir í nokkurn tíma. Stúlkan sem mun fara niður kanínuholuna er Mia Wasikowska, átján ára leikkona frá Ástralíu.

TIM Burton hefur loksins fundið sína Lísu, en leit að aðalleikkonu í kvikmynd hans um Lísu í Undralandi hefur nú staðið yfir í nokkurn tíma.

Stúlkan sem mun fara niður kanínuholuna er Mia Wasikowska, átján ára leikkona frá Ástralíu. Hún er vissulega enn með öllu óþekkt en það mun breytast fljótlega því hún mun birtast á næstu mánuðum á móti Bond sjálfum, Daniel Craig, í heimsstyrjaldardramanu Defiance og þá mun hún leika ungan aðdáanda Ameliu Earhart í kvikmynd Miru Nair á ævi flugkonunnar, sem Hillary Swank mun leika. En tökur á Lísu í Undralandi hefjast hins vegar í nóvember.