Dennis Siim
Dennis Siim
FJÖLDI leikmanna úr Landsbankadeild karla í knattspyrnu var úrskurðaður í bann á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær.
FJÖLDI leikmanna úr Landsbankadeild karla í knattspyrnu var úrskurðaður í bann á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær. Daninn Dennis Siim, FH, Bjarki Freyr Guðmundsson, Þrótti, og Fylkismennirnir Ólafur Ingi Stígsson og Þórir Hannesson fengu allir tveggja leikja bann. Siim, sem átti að vera í banni gegn Keflavík, fékk eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda en spjaldið sem hann fékk á móti Val gleymdist að skrá inn eins og frægt er orðið. Siim hefur síðan bætt tveimur áminningum í safnið og fékk annan leik til viðbótar í bann vegna sex gulra spjalda. Þeir leikmenn sem fengu eins leiks bann og verða ekki með í lokaumferðinni voru: Tryggvi Guðmundsson, FH, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Gunnar Valur Gunnarsson og Óli Stefán Flóventsson, allir úr Fjölni, Heiðar Geir Júlíusson, Fram, Kjartan Ágúst Breiðdal, Fylki, Árni Ingi Pjetursson, Helgi Pétur Magnússon og Stefán Þór Þórðarson, allir úr ÍA, Bjarni Guðjónsson, KR, Helgi Sigurðsson, Rasmus Hansen og Sigurbjörn Hreiðarsson, allir úr Val, og Sigmundur Kristjánsson, Þrótti.