ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 0,46% í viðskiptum gærdagsins og var lokagildi vísitölunnar 4.167,02 stig. Gengi bréfa Føroya banka hækkaði um 0,59% og Straums um 0,34%. Gengi bréfa Kaupþings og Alfesca stóð í stað.

ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 0,46% í viðskiptum gærdagsins og var lokagildi vísitölunnar 4.167,02 stig.

Gengi bréfa Føroya banka hækkaði um 0,59% og Straums um 0,34%. Gengi bréfa Kaupþings og Alfesca stóð í stað.

Bréf Eikar banka lækkuðu um 13,85% í gær og þá lækkaði gengi SPRON um 5,88% og Eimskipafélagsins um 2,48%.

Velta með hlutabréf nam 5,9 milljörðum króna, en mest var veltan með bréf Glitnis, fyrir um 2,7 milljarða króna. bjarni@mbl.is