Enn og aftur verðum við Norðlendingar vitni að því hversu ómögulegur flugvöllurinn á Akureyri er til millilandaflugs því ítrekað hefur orðið að vísa vélum annað.

Enn og aftur verðum við Norðlendingar vitni að því hversu ómögulegur flugvöllurinn á Akureyri er til millilandaflugs því ítrekað hefur orðið að vísa vélum annað. Þeir sem ætla að nota flugvöllinn á Akureyri til millilandaflugs geta því átt von á því að sitja í rútu í þrjár klukkustundir til Egilsstaða.

Í Aðaldal við Húsavík er besti flugvöllur á Norðurlandi. Besti flugvöllur Norðurlands til millilandaflugs og trúlega best staðsetti flugvöllur Norðurlands ef tillit er tekið til erlendra gesta sem koma norður og ætla að skoða náttúruperlurnar í Þingeyjarsýslu. Samgönguráðherra, Kristján Möller, hafnaði hugmyndum mínum um að efla Aðaldalsflugvöll og sagðist aðeins ætla að styðja flug á Akureyri. Er ekki kominn tími til að skipta um skoðun Kristján?

Leggjumst á árarnar og hefjum undirbúning á millilandaflugvelli í Aðaldal.

Þegar Vaðlaheiðargöng verða tilbúin geta Akureyringar rennt sér á 30 mínútum á góðan alþjóðaflugvöll, sem verður alltaf opinn, ólíkt þeim sem nú er til staðar í löngum Eyjafirði með þrönga fjallgarða til beggja hliða og háa fjallstoppa til suðurs. Möller sjáðu nú ljósið og vertu með!

Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi, búsettur á Húsavík.