* Í 24 stundum í gær var því haldið fram af blaðamanni blaðsins að Tónlist.is hlyti að vera hin eina sanna slagaramælistika landsins. Án þess að hér sé verið að gera lítið úr mikilvægi Tónlist.is er þetta því miður einfaldlega rangt.
* Í 24 stundum í gær var því haldið fram af blaðamanni blaðsins að Tónlist.is hlyti að vera hin eina sanna slagaramælistika landsins. Án þess að hér sé verið að gera lítið úr mikilvægi Tónlist.is er þetta því miður einfaldlega rangt. Í Lagalistanum sem birtur er á hverjum fimmtudegi í Morgunblaðinu er að finna vandaða samantekt á vinsælustu lögum (slögurum) landsins miðað við spilun á helstu útvarpsstöðvum auk sölu á Tónlist.is. Lagalistinn er því eini listinn sem kallast gæti slagaramælistika landsins.