Það kemur ekki vel út að ágreiningur innan lögreglu sé háður í fjölmiðlum.

Það kemur ekki vel út að ágreiningur innan lögreglu sé háður í fjölmiðlum. Mér finnst ekki klókt að yfirmaður sérsveitar segi sig úr félagi með fjölmiðlabrambolti ef það er markmið hans að stuðla að því að lögreglan á Íslandi vinni saman og eyði ekki kröftum í innbyrðis togstreitu og dægurþras svo ég taki upp orðalagið sem notað er í fréttinni.

Það er mikilvægt að lögregla sé samstillt og leysi sín innri mál í rósemd og yfirvegun. Það er líka mikilvægt að ein lög séu í landinu og það ríki tiltölulega góð sátt um þau.

Salvör Gissurardóttir

salvor.blog.is