Sharon Stone
Sharon Stone
LEIKKONAN Sharon Stone missti fyrr í mánuðinum forræði yfir átta ára gömlum syni sínum, Roan. Fyrrum eiginmaður Stone, Phil Bronstein, fær fullt forræði yfir barninu.
LEIKKONAN Sharon Stone missti fyrr í mánuðinum forræði yfir átta ára gömlum syni sínum, Roan. Fyrrum eiginmaður Stone, Phil Bronstein, fær fullt forræði yfir barninu. Í dómsúrskurði segir að Stone hafi ekki fært næg rök fyrir því að barnið ætti að vera í hennar umsjá. Bronstein þykir geta séð betur fyrir Roan og veitt honum öruggara heimili. Úrskurðurinn er sagður varanlegur en Stone á þó möguleika á jöfnu forræði flytji hún nær Bronstein, en hann býr í San Francisco.