Nokkur misbrestur er á því að verðmerkingar í verslunum hér á landi séu eins og þær eiga að vera samkvæmt niðurstöðum kannana sem Neytendastofa hefur birt á vefsíðu sinni að undanförnu.

Nokkur misbrestur er á því að verðmerkingar í verslunum hér á landi séu eins og þær eiga að vera samkvæmt niðurstöðum kannana sem Neytendastofa hefur birt á vefsíðu sinni að undanförnu. Kannað var hvort verð í hillu samræmdist verði á kassa og hvort merkingar væru í sýningargluggum. Kannaðar voru verðmerkingar í matvöuverslunum, bakaríum og sérvöruverslunum.

Niðurstöður á hverju svæði hafa verið birtar á heimasíðu stofnunarinnar www.neytendastofa.is.

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæða til að gera athugasemdir við vegna verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. einarj@24stundir.is